Félagsfundur um málefni framhaldsskólans

Félagsfundur Kennarafélags Tækniskólans verður haldinn á mánudaginn kemur, 14. maí, um drög samstarfshóps um málefni framhaldsskólans.

Starfshópur hefur unnið að þessum drögum um nokkurt skeið. Í þeim er fjallað um framtíðarskipulag framhaldsskólans, kennarastarfsins jafnt sem aðra þætti skólastarfsins.

Það verður Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara sem kynnir drögin og hefur umræður um þau.

Stjórn KTs hvetur kennara til þess að mæta vel og stundvíslega á fundinn og taka þátt í umræðum um þetta áhugaverða – og eldfima – málefni.

Tillögu að starfsáætlun mótmælt

Stjórn Kennarafélags Tækniskólans ræddi fyrirliggjandi tillögu að starfsáætlun skólans á fundi sínum 27. apríl sl.  Samkvæmt tillögunum  er gert ráð fyrir að farið verði út fyrir kjarasamningsbundinn starfsramma framhaldsskóla. Stjórnin samþykkti eftirfarandi ályktun um málið og sendi skólameisturum Tækniskólans:

Ályktun stjórnar Kennarafélags Tækniskólans:
Um tillögu að starfsáætlun fyrir næsta skólaár

Skólameistarar Tækniskólans hafa lagt fram tillögu að starfsáætlun fyrir næsta skólaár. Í tillögu þessari er gert ráð fyrir að farið verði 3 daga út fyrir 9 mánaða kjarasamningsbundinn starfstíma framhaldsskóla vorið 2013, og að aðliggjandi starfsdögum ljúki 5 dögum síðar en vera ætti, sbr. kjarasamningsgrein 2.1.5.1.
Stjórn Kennarafélags Tækniskólans gerir alvarlegar athugasemdir við tillögu skólameistaranna um að fara út fyrr 9 mánaða mörkin, sérstaklega í ljósi þess að auðvelt virðist vera að gera þær breytingar á henni sem þarf til að hún uppfylli ákvæði laga, reglugerða og aðalkjarasamnings, auk þess að koma koma fyrir samtals þremur haust- og vorfrídögum kennara.
Stjórn Kennarafélagsins er reiðubúin að vinna með skólameisturum að farsælli lausn á málinu.
26. apríl 2012.
Stjórn Kennarafélags Tækniskólans

Benedikt Kristjánsson nýr formaður KTs

Á aðalfundi Kennarafélags Tækniskólans í dag var Benedikt Kristjánsson, kennari í Byggingatækniskólanum, kosinn nýr formaður félagsins.
Auk Benedikts voru kosin í stjórn félagsins þau Dóróthea Siglaugsdóttir, Tæknimenntaskólanum; Haukur Már Haraldsson, Upplýsingatækniskólanum; Jón A. Sandholt, Upplýsingatækniskólanum, Kristján Kristjánsson, Upplýsingatækniskólanum og María Alva Roff, Tæknimenntaskólanum. Auk þeirra á annar af trúnaðarmönnum skólans sæti í stjórninni, sem meðstjórnandi; þeir Baldur J. Baldursson, Hönnunar- og handverksskólanum og Sigurður Ingi Andrésson, Véltækniskólanum ákveða sín á milli hvor þeirra tekur stjórnarsæti.
Á fundinum voru samþykktar tvær tillögur, þar sem þess er krafist, að miðannarmati kennara verði hætt, sem og „kennslumati“ nemenda. Hvorugt þjóni yfirlýstum tilgangi.
Umræður voru fjörugar, ekki síst um eðli kennslu. Var nýrri stjórn falið að kanna möguleika á að halda ráðstefnu um það málefni á starfsárinu.
Sigurður P. Guðnason stýrði fundinum af röggsemi og Guðný Lára Petersen ritaði fundargerð. Gestur fundarins var Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara.

Aðalfundur KTs á morgun

Ástæða er til að minna kennara á aðalfund Kennarafélsgs Tækniskólans á morgun, föstudag. Fundurinn hefst kl. 15:30 og fer fram í stofu 415, í aðalbyggingu skólans á Skólavörðuholti.

Minningarathöfn um Einar G. Gunnarsson

Minningarathöfn um Einar G. Gunnarsson, fyrrum kennara í Véltækniskólanum fer fram í Grafarvogskirkju kl. 13:00 á morgun, föstudag. Einar fórst með togaranum Hallgrími SI við Noregsstrendur á dögunum.

Tillaga um lagfæringu á lögum KTs

Á aðalfundi Kennarafélags Tækniskólans á föstudaginn kemur verður borin fram tillaga sem borist hefur, um breytingu á lögum félagsins. Í raun er hér um að ræða tillögu um lagfæringar, þar sem breytt er um orðalag en ekki innihald.

Í fyrsta lagi er lagt til að úr 4. grein laganna falli niður ákvæði til bráðabirgða, sem inn kom á síðasta aðalfundi vegna breytinga á tímasetningu aðalfundarins. Ákvæði þetta hljóðar svo: „Ákvæði til bráðabirgða: Halda skal aðalfund ársins 2010 í desember. Á honum skal afgreiða fyrirliggjandi tillögu um breytingar á 4. gr. laga félagsins. Verði tillagan samþykkt skal boða til framhaldsaðalfundar skv. ákvæðum hennar. Á framhaldsaðalfundinum skal afgreiða önnur þau mál sem 5. gr. laganna kveður á um, með þeirri breytingu þó, að þar skal bæði afgreiða reikninga ársins 2009 og 2010.“

Í öðru lagi er lögð til sú lagfæring að í 12. grein laganna komi orðið aðalfundur í stað stofnfundur. Greinin hljóðar svo núna: „Lög þessi öðlast gildi þegar stofnfundur Kennarafélags Tækniskólans hefur samþykkt þau og þau hafa fengið staðfestingu Félags framhaldsskólakennara.“

Í þriðja lagi er lagt til orðalagsbreytingu í síðustu línu plaggsins, þar sem getið er um hvenær lögin voru síðast endurskoðuð. Þessi lína er ekki hluti laganna, en talið eðlilegt að bera breytinguna undir fundinn. Setningin hljóðar svo: „Lög félagsdeildar voru síðast endurskoðuð á aðalfundi félagsins, 20. nóvember 2009.“ Lagt er til að hún hljóði svo „Lög þessi voru síðast endurskoðuð á aðalfundi félagsins 10. febrúar 2012.“

Stjórnarkjör og -skipti á aðalfundi

Á aðalfundi KTs nk. föstudag tekur ný stjórn við af þeirri sem lætur af störfum. Framboðsfrestur til stjórnarkjörs rann út án þess að nægilega margir byðu sig fram til að hægt væri að kjósa. Raunar of fáir til að hægt væri að skipa fullmannaða stjórn. Einn bauð sig fram í stjórnina, Jón A. Sandholt, kennari í Upplýsingatækniskólanum.
Fráfarandi formaður hafði lýst því yfir að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs, auk þess sem Sigríður Halldóra Pálsdóttir gaf ekki kost á endurkjöri heldur.
Hins vegar hafa mál skipast þannig að Benedikt Kristjánsson í Byggingatækniskólanum, sem setið hefur í stjórn síðasta árið, hefur gefið kost á sér í formannssætið og Haukur Már Haraldsson gefur kost á sér sem meðstjórnandi.
Þar sem framboðsfrestur var ekki nýttur til framboða verður leyfilegt að koma með framboð til formanns- og stjórnarstarfa á aðalfundinum. Þeir sem hyggja á slík framboð eða uppástungur um fjarverandi félagsmenn, þurfa að hafa í huga að þeir þurfa að vera með í höndum samþykki viðkomandi einstaklings.

Aðalfundur KTs 10. febrúar

Ákveðið hefur verið að halda aðalfund Kennarafélags Tækniskólans föstudaginn 10. febrúar nk. Fundurinn verður haldinn í stofu 415 á Skólavörðuholtinu og hefst kl. 15:30, stundvíslega.

Dagskráin verður hefðbundin, skv. lögum félagsins. Lagðir verða fram reikningar félagsins, kosið í ýmis embætti og ný stjórn tekur við.

Einar G. Gunnarsson, kennari, fórst í sjóslysi

Nú hefur opinberlega verið frá því skýrt að þrír menn hafi farist með togaranum Hallgrími SI, við Noregsstrendur. Einn þessara þriggja var Einar Gísli Gunnarsson, kennari við Vélskólann og síðar Tækniskólann frá stofnun hans til loka vorannar 2011, þegar hann lét af störfum fyrir aldurs sakir.

Einar Gísli hafði í mörg ár mikil afskipti af hagsmunamálum framhaldsskólakennara. Sá sem þetta ritar sat með honum í nokkur ár í stjórn hins gamla Félags framhaldsskólakennara, sem var aðili að gamla Kennarasambandi Íslands. Eftir að gamla KÍ var lagt niður og nýja Kennarasambandið stofnað og þar með nýtt Félag framhaldsskólakennara héldum við, síðustu stjórnarmennirnir, hópinn og hittumst reglulega ásamt mökum og áttum skemmtilegar stundir í orlofsbúðunum við Flúðir. Með Einar kveður því góður félagi, sem sárt  verður saknað.

Á sama hátt verður Einars minnst með söknuði af félögum sínum við Háteigsveginn, eftir margra ára samstarf.

Ég sendi eftirlifandi eiginkonu hans, börnum og barnabörnum einlægar samúðarkveðjur.

Framboðsfrestur – Stjórnarkjör

Aðalfundur Kennarafélags Tækniskólans, KTs, verður haldinn í næsta mánuði. Fyrsti liður í undirbúningi fundarins er stjórnarkjör. Hengdar hafa verið upp auglýsingar í skólanum, þar sem lýst er eftir framboðum til stjórnarstarfa; kjósa skal um formann, ritara, gjaldkera og tvo meðstjórnendur, sem og tvo varamenn. Fram kemur í auglýsingunni að sitjandi formaður Kennarafélagsins gefur ekki kost á sér til endurkjörs.

Áhugasamir kennarar eru hvattir til þess að gefa kost á sér til stjórnarstarfa, eða að öðrum kosti að benda á vænlega frambjóðendur. Senda skal tilkynningar þar að lútandi á netfangið hmh@tskoli.is.

Stjórnarkjör á að fara fram fyrstu vikuna í febrúar og ný stjórn tekur við á aðalfundi, sem samkvæmt laganna hljóðan á að fara fram eigi síðar en 15. febrúar.